Þessi réttur er einfaldur og fljótlegur. Hrísgrjón, brussel-spírur og sæt paprika.
Gljáðar Brussel spírur eru mjög delissjús! Uppskriftina að þeim fékk ég á matarbloggi Gwyneth Paltrow, Goop.com.
Brussel spírur
Sjóðið þær í 7 mínútur, leyfið svo að kólna smávegis og skerið í tvennt.
Hitið olíu á pönnu og steikið spírurnar á hvolfi í 4-5 mín. án þess að snúa. Að þeim tíma liðnum er þeim snúið og steiktar í 3 mín. í viðbót.
Setjið á fat og saltið með sjávarsalti, hellið ólívuolíu á og pressið sítrónu yfir allt saman.
Sætar paprikur
Skerið í þykka strimla, langsum. steikið á pönnu við miðlungshita þangað til mjúkar og smá brenndar. Saltið svo.
Hrísgrjón
Ég set 1 dl af hrísgrjónum í 2 dl af vatni og 1 tsk af salti og læt suðuna koma upp, set þá á lægsta straum og læt malla í 10 mín., tek þá af hellunni og læt standa í aðrar 10 mín.. Lokið er á allan tímann.